Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Sigrún Brynjarsdóttir
  • Um mig: Sigrún heiti ég og kem úr hafnarfirðinum, ég verð skiptinemi í Usa 2010-2011.

Finally blogg.

21. október 2010 klukkan 20:45
Hæhæ allir, veit að það er mjög langt síðan ég hef bloggað síðast en ég bara hef ekki haft tíman í það. Venjulega eru skóladagarnir svona. Vakna klukkan 6, skólabíll klukkan 7, skólinn byrjar 7:30 og búin kl 14:00 síðan fer ég á cross country æfingu og eftir það fer ég heim og síðan er kvöldmatur og ég þarf að læra. Síðan er ég alltaf að fara gera e-ð um helgar þannig að bloggið fer bara aftast á listann.
En núna er ég í haustfrí þannig núna hef ég tíma að gera eitthvað. Ég fór í mall of america í gær með pauline, bíó í dag með amber og klippingu á morgun og á laugardaginn fer ég til Duluth. Og síðan þarf ég að koma fyrir einni 5 blaðsíðna ritgerð á milli.
Í fyrradag var stórt Cross country conference meet sem var við skólann minn þannig ég þekkti svæðið sem við vorum að hlaupa. Og mér gekk miklu betur að hlaupa en venjulega held að ég bætti metið mitt um 2 mínútur. Það getur kannski verið útaf því að ameríska football liðið var að hrópa og kalla og stiðja skólann okkar þannig það var enginn alveg að fara stoppa að hægja á sér þar. Og ég náði 10. Sæti í Junior Varsity Girls. Síðan unnum við stelpurnar keppnina og fengum verðlaun sem var frábært. Tókum fullt af myndum af okkur með verðlaunagripinn sem mun líklega fara í Yearbook.
Mér finnst svo skrítið að ég er búin að vera hérna í 10. Vikur í gær. Öll ferðin er 45 vikur og 6 dagar (jább ég taldi) og ég er búin með 1/5 af dvölinni.
Í gær fór ég í mall of america og eyddi kannski aðeins of mikið af pening þannig ég ætla ekki að versla neitt í bili. Man ekki mikið meira sem er búið að gerast seinustu vikurnar en skóli, læra og læra og cross country og vinir.
Reyni að blogga aftur fljótt!
Sigrún

Skólinn!

09. september 2010 klukkan 01:17
Hæ allir hér byrja ég aftur með lítið blogg, seinustu daga er ég búin að vera á hlaupaæfingum. Föstudaginn 3.sept fór ég í skólann í orientation og við löbbuðum um skólann. Já ég held að ég mun ruglast á stofum og vita ekkert hvert ég á að fara... og síðan fékk ég aftur stundaskrá þar sem ég týndi minni og svo fann ég út hvaða lunch ég tek. Ég er í seinni lunch, er soldið smeik fyrsta skóladaginn að finna sér stað að borða og hverjum á að sita með. The lunchroom er frekar týpiskt lunchroom og við skulum sjá hvort þetta er eins og í bíómyndunum eða ekki. Eftir orientation fór ég aftur á state fair með Jim og Nancy og sumir úr fjölskyldu Jims. Það var mjög gaman, ég prófaði fried cheese sem er mjög gott þó maður ætti ekki að borða mikið af því .... SVO FEITT! Svo prófaði ég fried pickle, það fannst mér ekki eins gott og þá fattaði ég líka að pickles er súrar gúrkur....soldið sein á því haha. Síðan fékk ég mér aftur corn dog og svo ferska kókómjólk.
Laugardaginn 4 sept vaknaði ég frekar snemma til að hjálpa til með blóm fyrir brúðkaup hjá dóttur vínkonu Nancy‘s. Síðan fór ég í brúðkaupið brúðkaupið, mitt fyrsta ameríska kaþólska brúðkaup! Og brúðin var í rosalega flottum kjól, hann var geðveikur!
Annars skrítnir hlutir til að pæla í: Drive thru banki og drive thru apótek? Sniðugt?
Skólinn hmmm já ég þarf að vakna á hverjum morgni kl 6!!! Fáranlegt en satt, ég vakna aldrei svona snemma nema þegar ég er að fara til útlanda snemma um morguninn. Anyways já ég vakna kl 6 og geri mig til og síðan fór ég í ekta týpískan school bus. Það voru margir ungir krakkar þar en Pauline (frá belgíu) tekur sama school bus og ég þannig það er gott. Það var frekar fyndið að hún átti afmæli fyrsta skóladaginn sem er soldið skrítið og öðruvísi þegar maður þekki ekki marga. Ég er búin að mæta 2 daga í skólann og svona hljómar hann. Fyrsti tíminn minn er 20th century topics og það sem við erum að læra núna skil ég ekki baun í bala hvað er í gangi. Reyndar hafa þau lært e-ð svipað áður hinir nemendurnir en núna bara erfiðara.. þetta var basically t.d. við vorum að horfa á mynd af einhverju sem einhver hafði teiknað og áttum að skrifa hvað það þýddi og frá hvaða tíma og afhverju. Þetta var mynd af snák í bútum sem sumir þekktu þar sem þetta var einhver merkilegur hlutur... og svo eitthvað málverk eftir það en ég hafði aldrei séð það áður heldur haha. Þessi tími er IB tími sem er advanced tími og ég held fólk getur fengið kredit fyrir tímann í college. En já í þessum tíma voru claire og joey sem ég þekkti fyrir þannig ég átti ekki erfitt með að finna fólk til að sita við hliðiná. Eftir þann tíma var advanced orchestra. Það er ekki stór tími, við vorum svona 8 en verðum kannski 9 eða 10 en okkur vantar selló. Það var fullt af fólki í þessum tíma en þau útskrifuðust öll í vor þannig núna er þetta lítill hópur. En til að bæta það þá er ferð sem þau fara á 2 árs fresti og verður held ég í vor og kennarinn var að tala um að við myndum kannski fara til annað hvort til New York eða San fransisco sem hljómar ótrúlega gaman og spennandi. Eftir þann tíma er Enska sem þjálfari minn kennir, Pauline var líka í þessum tíma og svo fann ég út að það var annar skiptinemi sem sat hinum megin við mig án þess að ég fattaði frá póllandi. Eftir þann tíma fór ég í advisory og þar þekkti ég aðra stelpu sem er frá ítalíu. Þessi tími er til að fá hjálp frá kennurum ef þú hefur vandamál með heimanám eða lesa ef þú hefur ekkert heimanám. Eftir það var Pre-calculus tími og hann er soldið erfiður. Þetta er samt allt sem ég hef lært áður (eða fyrsti kaflinn eigilega) en ég skil ekki öll orðin á ensku sem gerir þetta enn erfiðara. En ég veit það verður eitthvað nýtt að læra þar sem við þurfum grafíska reiknivél sem ég aldrei notað áður. Og þar kynntist ég öðrum skiptinema (stelpu) frá þýskalandi. Eftir það fórum við í lunch og ég sat líka með nokkrum öðrum sem ég þekkti svo að ég er ekki með nein erfiði með lunch, þó að það er alltaf troðið! Af fólki. Eftir þetta fór ég í engineering design sem er nýtt og hljómar spennandi. Tölvustofan er með risastóra apple skjái og tiny lyklaborð sem er mjög nice. Við notum autodesk software þó hann er limited þar sem actual heill autodesk software kosta um 3500 dollara á mann. Eftir það var physics Pre-ap sem hljómar mjög erfitt þar þekkti ég 1 stelpu úr cross country og 2 skiptinema. Og núna held ég að ég viti um 10 aðra skiptinema í bili. 4 frá þýskalandi, 1 frá belgíu, 1 úkraníu, 1 rússlandi, 1 japan, pólland og ítalíu. En verð að fara í bili sjáumst! Commenta!

cross country og fl

30. ágúst 2010 klukkan 20:37
Gamla bloggið...þetta datt út og veit ekki afhverju allt er að bila á síðunni minni og ég skal skrifa það sem ég man og bæta við.

Það er búið að líða meira en vika síðan ég skrifaði seinast og örugglega búin að gleyma hinu og þessu. En Cross Country er æðislegt fyrir utan það að það er mikð hlaup í því haha. Ég held við hlaupum að minnsta kosti 3 km á dag. Mánudaginn 23. Ágúst var 13 mílna hlaup (hálft maraþon) og við vorum 2-3 saman í hóp og einn hljóp og hinir hjóluðu svo skiptust maður á þegar hinn er þreyttur. Ég held að ég sjálf hafi hlupið svona 3-4 mílur. Annars er ég búin að kynnast nokkrum stelpum í liðinu ágætlega og þær eru mjög nice. Það eru flestir frekar opnir og góðir svo það er bara gott.
Ég man ekki alveg nákvæmlega hvað ég gerði þessa viku. Ég er búin að vera með Pauline, fór í bíó með kate seinasta miðvikudag á The Kids are alright og seinasta föstudag var ég með mai úr cross country liðinu. Seinasta laugardag fór ég út að hlaupa og eftir það fór ég í dýragarðinn með Kate og vinum hennar danielle og ben. Danielle tók aðra vínkonu sína með sér sem er líka skiptinemi frá Noregi. Það var frekar fyndið að þær vissu ekki að við þekktumst fyrir og frekar óplanað. Eftir það fórum við að borða og síðan fórum við í verlsunarmiðstöð sem heitir rosdale og ég keypti mér hitt og þetta á útsölum þar. Í gær var Afs picnic og ég bakaði mína fyrstu pie sem var bláberja-pie. Þar hitti ég aðra skiptinema sem ég þekkti fyrir og nýja. Það var mjög gaman að hitta þau aftur og kynnast nýjum, þau voru mjög hress og ég held að við ætlum kannski að gera e-ð saman á næstunni. Í dag vaknaði ég mjög snemma (6:15) til að fara á the state fair með Pauline. Jim var að vinna við að dæma dýr svo að við komum með og skoðuðum um. Fullt af skemmtilegum stöðum þar og mikið af mat sem er allt sem þú getur (put on a stick). Fullt af deep fried mati líka, þú gast fundið allt frá deep fried cheese til deep fried pickles eða candy bars. Ég smakkaði ekki á þessu en ég ætla að gera það næst þegar ég fer á næstunni. Þessi state fair er önnur stærsta á landinu og er huge!!! Hún er alltaf opin í 12 daga í lok ágúst til held ég memorial day. Ég og pauline fórum í fullt af amusement park tæki og síðan unnum við bangsa fyrir að spila billiard. Við fengum báðar grísa. Ég fékk líka mína fyrstu corn-dog, slushee(krap) (hann er btw ekki góður, var meira eins og froða og smoothie saman, en snow cones er held ég mjög svipað krap) og fékk mér kexkökur og pauline fékk sér belgian waffle on a stick, slushee og fl. Síðan var cross country æfing og ég var alveg dauðþreytt eftir allt sem við löbbuðum í the state fair... og svo í kvöld er kvöldmatur hjá stelpu í cross-country og bonfire og fl sem verður líklega mjög gaman. Heyrir í ykkur seinna bæj.

Fyrstu dagarnir...

18. ágúst 2010 klukkan 17:53
 

Jæja núna er ég búin að vera hérna í viku. Er búin að koma mér fyrir og hitta fjölskyldu Jim og Nancy's. Ég lenti á flugvellinum í Minneapolis 11. ágúst með stelpunum Agnes og Bryndís. Það var soldið skrítið að vera loksins komin eftir langa bið og var soldið hissa þegar sjálfboðaliðinn bjóst ekki við mér. Ég átti að fljúga til Minneapolis og svo áfram til Chicago eins og Agnes og Bryndís og svo taka rútu á staðinn sem ég mun búa. Svo fékk ég Minneapolis þannig að það væri fáranlegt að ég myndi fara þá ferð og hún breyttist en Afs í Minnesota vissi það ekki. Þannig ég beið með sjálfboðaliðanum þegar Agnes og Bryndís fóru (mjög skrítið að vera allt í einu ein) þar til einhver myndi sækja mig. Svo komu einhverjar konur og sóttu mig og keyrðu mig á mótel þar sem ég átti að fara á. Það var bara ein stelpa mætt held ég sem var herbergisfélaginn minn og svo voru það sjálfboðaliðarnir. Við fórum í einhverja leiki og svo fór ég bara að sofa.

12. ágúst:  Daginn eftir voru aðrir skiptinemar komnir og við fórum í komunámskeið/orientation. Ég held við vorum svona 20-30 og svo áttu fleiri að koma seinna í dag sem myndu fara i orientation daginn eftir. Ég var eini íslendingurinn, svo voru margar norskar stelpur, fólk frá þýskalandi, Philippseyjum, Japan og nokkur lönd í viðbót. Seinna um daginn áttu fjölskyldurnar að koma. Það var heill salur af fólki og síðan var maður á sviðinu sem kynnti alla skiptinemana og þá átti fjölskyldan að koma að ná í þig, taka mynd og svo fara. Þar sem ég var komin degi áður kom aðeins Nancy að sækja mig því Jim var á ferðalagi vegna vinnu. Við fórum heim og ég kom mér fyrir og svona.

13. ágúst: Þennan dag fórum ég og Nancy að erindast. Við fórum að kíkja á síma, þó að ég er ekki enn komin með síma og við vorum komin með ágæta hugmynd um hvernig ég myndi fá og kostnað. Við áttum tíma hjá einhverskonar skólamiðstöð veit ekki alveg hvað það er enn maður þarf að fara í gegnum þetta ef maður ætlar að innrita sig í skóla eða skipta um skóla. Við kíktum aðeins í einn mall áður en við fórum og ég keypti smá make up og allir sem vinna í búðunum eru voða kurteis og skemmtileg. Svo fórum við í tíman og eftir það kíktum við í mall of america. Þannig nú get krossað það af listanum í bili. Það er Hugeeee! Risastór skemmtigarður og fullt af búðum og keypti mér aðeins stuff og síðan fórum við heim. Við bökuðum pizzu og síðan kom Jim heim.

14. ágúst: Þá fórum við í túristaferð með fjölskyldu Jim's um gansterana í St. Paul. Það var mjög gaman. Guide-inn var mjög fyndinn og gerði smá grín að mér, og sagði að ég liti út eins og Amy Adams og gerði grín af fleirum.  Gangsterarnir héðan eru lika karektarnir úr Public Enemys með Johnny Depp. Snoopy og charlie brown er héðan svo stundum í borginni sér maður styttur af þeim, það koma bráðlega á facebook. Eftir það fórum við til Bróður Jims í mat með fjölskyldunni og ég horfði í fyrsta sinn á Baseball. Búin að átta mig eitthvað á því.

15. ágúst: Man ekki alveg hvað við gerðum en við fórum í mat hjá foreldrum Nancy's, sem var mjög fínt. Þau eru mjög fín og voða klassíkt amerískt hús. Síðan fórum við að ná í rabbabara hjá Farm húsi Jim's fjölskyldu. Þau eru með allskonar þar fullt af maís, tómötum og rabbabara og fleira.

16. ágúst: Fór fjölskylda Jims, ég og Jim í sjálfboðaliðastarf hjá Feed My Starving Children. Það var mjög áhugavert og gaman. Það var fullt af fólki þarna, stór hópur frá Japan um 60 manns og svo við og annað fólk. Samtals á 2 tímum gerðum við 100 kassa með mat. Sem myndi gefa 59 börnum mat í heilt ár. Um 21.500 ca máltíðir. Eftir það fórum við í matvörubúð og elduðum svo mat.

17. ágúst: Fórum ég og Jim að erindast um, fórum til Minneapolis í búð, svo kíktum við í kirkjuna þar sem er mjög flott. Síðan fórum við í American-Swedish Institute sem var að sýna allskonar módel og myndir af húsum eftir sænskum arkitekt. Síðan fórum við í Skandinavíska búð sem seldi dót og mat. Fann þar grjónagraut og lefsur og allskonar annað. Síðan fórum við heim.

18. ágúst: fór ég í skólan til conselour til að velja tíma og skrá mig í sport. Ég hitti þar eina host-mom og stelpu frá belgíu sem er jafngömul og ég. Þau buðu okkur í partý í enda ágúst og þau búa ekki langt í burtu, bara nokkur blocks. Ég skráði mig í Cross-Country sem er einfaldlega bara að hlaupa. Ég byrja síðan á morgun kl 9. Stundaskráin mín er síðan svona:

1 period: 20th Century topics IB

2 period: Orchestra Advanced

3 period: English 12

4 period: Pre-Calculus

5 period: Intro to Engineering Design

6 period: Physics Pre-AP

Og svona verður hún alla daga vikurnar. Ef mér líst ekki vel á það sem ég er í get ég breytt og ég má sleppa einum valtíma ef ég vil. Þannig ef mér líst ekki vel á orchestra advamced eða engineering (sem eru valtímar) þá get ég valið annað, varatíminn minn er kínverska. Og ef ég er búin með þessa stærðfræði get valið annan og ef enskan er t.d. og létt get ég farið í þyngri sem er oftast AP tímar eða pre. Annars er ég búin að heyra frá starfsmönnum skólans að ég er mjög heppin með kennara. Og skólinn hjá mér verður frá 7:30-14:00 og svo mun cross country koma eftir skólann til októbers. Ég hlakka mjög til að byrja á morgun að hitta fólk. Síðan byrjar skólinn 7. September.

Jæja þeir sem náðu að klára þetta blogg. Til hamingju og takk fyrir að nenna að lesa þetta allt. Þú ert búin að lesa núna yfir 1000 orð um það sem ég er búin að gera í þessari viku.

Er komin með Fjölskyldu!!!!!

17. júlí 2010 klukkan 13:02
Er svo ánægð að vera komin með fjölskyldu og vita hvar ég verð. Ég fékk emailið í gærkvöldi og fríkaði út, var svo glöð. En já ég verð hjá Sannerud fjölskyldunni. Er búin að senda þeim email og vona að þau sendi mér bráðlega tilbaka. Fjölskyldan samanstendur af föður sem heitir James og móður sem heitir Nancy. Síðan er líka einn hundur á heimilinu sem heitir Jack. Þau búa í St. Paul í Minnesota sem er við Minneapolis. Þær eru oft kallaðar twin cities því þær eru alveg hlið við hlið og ef maður kíkir á google map lítur þetta út fyrir að vera sama borgin haha. St. Paul er höfuðborg Minnesota, það búa 285 þúsund manns þar og ég bý mjög miðsvæðis og rétt hjá Mississippi river sem rennur í gegnum borgina. En borgirnar til samans og í kring er um 3,5 milljónir manns.
Skólinn minn heitir Highland Park High School og eru um 1450 manns í honum. Hann er ekki langt frá heimili mínu en er 2 miles sem ég held er ca 3,6 km í burtu. Er nú þegar búin að skoða alla "courses" ég get farið í og klúbba og það er alveg fullt af þeim. 
Hér eru myndir sem ég fann á wikipedia af St. Paul

 

Það styttist í þetta!

03. júlí 2010 klukkan 15:53
Maður þarf alltaf einhverntíman að byrja á þessu fyrsta bloggi og ég er búin að ákveða að ég ætti bara að gera það í dag. Jæja já ég heiti Sigrún Brynjarsdóttir. Ég er úr hafnarfirðinum og er nýbúin að klára fyrsta árið í Versló. Ég veit ekki hvað varð af því að ég vildi flytja í 1 ár frá vinum og fjölskyldu í nýjan heim en það virðist bara vera svo spennandi og skemmtilegt og ég klakka svo mikið til!!!!

Ég er ekki komin með miklar upplýsingar um hvar ég verð, hjá hverjum og í hvaða skóla og það er að gera mig crazy, mig langar svo að vita! En ég veit að ég flýg frá Íslandi 11.ágúst til Minneapolis, mig minnir að við stoppum þar í 2,5 tíma eða svo og síðan fljúgum við til Chicago. Við förum þrjár saman. Ég, Agnes og Bryndís. Ég var að vona að einhverjir myndu samferða okkur til Bandaríkjanna sem færu kannski til hinna svæðanna New York, Seattle, Los Angeles og Houston en svo virðist ekki.

En já ég hlakka svo mikið til, þetta á eftir að vera frábært ár. Ég ætla að reyna blogga þegar ég get og nenni. Næst þegar ég blogga vona ég að ég verð búin að fá fjölskyldu.
Aðeins 39 DAGAR í þetta!!!!!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Atburðarteljari

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur